Forsíđa arrow Um okkur


Opnunartími verslunarinnar:
     Mán - fös: 9 - 18
     Lau: 11 - 14*

*Lokað er um helgar yfir sumarið

Hér erum við!

Um Fönix Rafpóstur

Fönix er þekktast fyrir sölu á vönduðum raftækjum fyrir heimilið en fyrirtækið er 73 ára á þessu ári. Einnig eru á þessu ári liðin 63 ár frá því fyrsta Nilfisk ryksugusendingin kom til landsins.

En tímarnir breytast og mennirnir með. Vöruúrval fyrirtækisins hefur vaxið til muna í gegnum tíðina og býður Fönix nú einnig upp á ýmis stærri raftæki fyrir atvinnulífið, ræstivörur og áhöld og vísir að hjúkrunarvörum er til staðar.

Um Fönix ehf.

Árið 1925 kom 22ja ára Dani til Íslands, ráðinn til Vöruhússins í Reykjavík.  Hann hét fullu nafni Christian August Otto Kornerup-Hansen.  Þar starfaði hann lengst sem fulltrúi, uns þann fyrsta mars árið 1935 að hann stofnaði innflutningsverslunina Fönix að Suðurgötu 10 í Reykjavík.  Árið 1973 flutti Fönix í nýbyggingu að Hátúni 6a.  Innfluttar heimilisvörur fyrirtækisins hafa einkum komið frá Norðurlöndunum.  Þekktustu vörurnar okkar eru NILFISK ryksugurnar, sænsku ASKO heimilistækin og GRAM kæli- og frystitækin.  Allt fyrsta flokks vörur. 

Í dag starfar fyrirtækið á tveimur mjög ólíkum sviðum.  Fyrir utan raftækjasöluna rekur fyrirtækið einnig Myndbandavinnsluna sem sérhæfir sig í sjónvarpskerfabreytingum og fjölföldun mynd- og hljóðefnis af og á hvaða form sem er.  Myndbandavinnslan yfirfærir einnig 8mm og 16mm filmur yfir á video eða stafrænt form.  Innflutningur og sala á mynd- og tónböndum ásamt CD-R og DVD diskum er mikill.  Myndbandavinnslan hefur einnig aðstoðað innlenda tónlistar- og kvikmyndagerðarmenn við fjöldföldun á efni til útgáfu í samstarfi við Tocano í Danmörku.   

Einkunnarorð Fönix eru fyrsta flokks.  Stór orð sem reynslan réttlætir. 

 

Hjá Fönix starfa alls 15 manns.
 
< Fyrri
FÖNIX Raftækjaverslun | Hátúni 6a | 105 Reykjavík | Sími 552 4420 - Fax 562 3735