

Sýnimynd: veggurinn er litaður í vafranum. Liturinn getur verið annar í raun, eftir birtu og gljástigi.
Litir Slippfélagsins
Kiddahvítt
Hvítir og beinhvítir · #FDFCFA
Kiddahvítt var lagaður upprunalega fyrir Kidda Sig. málara. Kiddi vildi ekki Málarahvítt þannig að Rúnar litunarmeistari bjó til lit sérstaklega fyrir Kidda. Liturinn er hér um bil hálfur Málarhvítur. Hann er eilítið gulari en hvítt og er því frekar hlýrri en hvítir litir sem eru frekar í áttina að gráum.
Hvað ætlar þú að mála?
Veggir og loft innanhúss
Steinn, þak og timbur utanhúss
Húsgögn, hurðir og listar
Liturinn fylgir með á vörusíðuna og við blöndum hann þegar þú pantar.










