Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: ARA14988
Hámark 1 stk. á lager.
3.0 DSS PE er nett og öflug háþrýstidæla frá AR Blue Clean með allt að 180 bar þrýstingi. Með aflrofanum velur þú á milli tveggja stillinga, svo dælan vinnur alltaf á réttum krafti fyrir verkið. Pallahreinsir fylgir með, svo hún hentar sérstaklega vel til að þrífa palla, hellur og stéttar.
Dælan er með innbyggðu slönguhjóli með sveif, svo slangan er alltaf snyrtilega upprúlluð og flækist ekki. Útdraganlegt handfang og hjól gera auðvelt að færa dæluna á milli staða, og byssan og lensan eiga sitt eigið geymsluhólf á tækinu.