
Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: ZL-1019353
Nett og sterk bílskófla úr trefjastyrktu plasti, 63 cm löng með T-handfangi. Fer lítið fyrir henni í skottinu.
Solid bílskóflan er lítil og sterk skófla sem á heima í skottinu yfir veturinn. Hún kemur sér vel þegar moka þarf bílinn út úr skafli, hreinsa frá hjólum eða losa snjóruðning við innkeyrsluna.
Skóflan er úr glertrefjastyrktu plasti sem er létt en mjög endingargott. 22 cm breitt blaðið tekur vel af snjó og vinnuvistvænt skaft með T-handfangi er auðvelt í meðförum, líka í vetrarhönskum.

