Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: ZL-1057179
| Breið snjóýta með stálkanti fyrir þunnt snjólag á stórum flötum. Rúnað blaðið lætur snjóinn rúlla á undan sér og stórt D-handfang hlífir bakinu. |
Fiskars X-series snjóýta 53 cm
Þegar nokkrir sentimetrar hafa fallið yfir nótt er þessi ýta fljótlegasta leiðin til að hreinsa pallinn, stíginn eða innkeyrsluna. Blaðið er 53 cm breitt og rúnað, svo snjórinn rúllar á undan því í stað þess að hlaðast upp, og þú kemst yfir stórt svæði á stuttum tíma.
Á blaðinu er stálkantur sem endist margfalt lengur en plast og vinnur vel á troðnum snjó. Ef ýtunni er snúið við nýtist kanturinn líka til að skafa ís af stéttinni. Snjór festist ekki á núningslitlu blaðinu og stórt D-handfang í vinnuvistvænu horni er þægilegt með vetrarhönskum.