Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: BÍ36996-1150
Bleikur langlífur frostlögur (G12 EVO) fyrir VW, Audi, Skoda og Seat, samrýmanlegur G13, G12++ og G12. Óblandaður, 50% blanda ver niður í −37 °C. 20 lítrar.
Antifreeze SP 12 EVO er bleikur langlífur frostlögur (Long Life) fyrir kælikerfi nútímavéla, sérstaklega smærri véla með forþjöppu þar sem álag á kælikerfið er mikið. Hann er þróaður fyrir nýjustu VW, Audi, Skoda og Seat bílana þar sem framleiðandi krefst G12 EVO og er að fullu samrýmanlegur eldri VAG frostlegi (G13, G12++ og G12).
Einkaleyfisvarin LOBRID PSi-OAT íblöndun veitir fulla tæringarvörn innan klukkustundar frá áfyllingu og heldur henni lengi, svo hægt er að hafa löng skiptibil. Frostlögurinn er laus við amín, nítrít, bórat og 2-etýlhexansýru og hentar einnig öðrum bílum og vinnuvélum sem krefjast staðlanna hér að neðan.