
Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: ZONEL-08
Rafeindastýrð gasfuglafæla frá Dazon sem fælir burt fugla og villt dýr með kröftugum hvellum. Stillanlegur fjöldi hvella, bil milli lota og allt að fjögur virknitímabil á sólarhring.
Zon EL08 er alrafeindastýrð gasfæla frá hollenska framleiðandanum Dazon. Hún gengur fyrir própangasi og 12 V rafgeymi og gefur frá sér kröftuga hvelli sem halda fuglum og villtum dýrum frá ökrum, túnum, fiskeldi, bryggjum, bátum og flugvöllum.
Þú velur hvort fælan skýtur 1, 2, 3 eða 4 hvellum í hverri lotu og hversu langt líður á milli lota, frá 1 upp í 60 mínútur eða af handahófi svo fuglarnir venjist ekki taktinum. Innbyggð 24 tíma klukka leyfir allt að fjögur virknitímabil á sólarhring, til dæmis bara í birtingu og ljósaskiptum. Eini hreyfanlegi hlutinn er segullokinn sem stýrir gasinu, svo viðhald er lítið.
