Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: BÍ02314-1150
Fjölþykktarglussi ISO VG 32 (HV/HVLP) með EP-íblöndun fyrir vinnuvélar og vökvakerfi undir miklu álagi. ISO 11158 HV, DIN 51524-3 HVLP. 5 lítrar.
Perlus H 32 er vandaður glussi (vökvakerfisolía) í seigjuflokki ISO VG 32 með háþrýstiíblöndun (EP). Hann er ætlaður vökvakerfum sem vinna undir miklu álagi og við breytilegt hitastig, t.d. í vinnuvélum, gröfum, krönum, lyfturum og föstum vökvakerfum.
Hár og stöðugur seigjustuðull gerir glussann jafnvígan í frosti og hita. Hann ver gegn sliti, ryði og tæringu, skilur vel frá sér vatn og loft, freyðir lítið og fer vel með þéttingar.