Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SKU-0094
Veldu breidd til að bæta í körfu
Hraðvirkt og nákvæmt fjölsagarblað með tvöföldum japönskum tönnum fyrir tré, gifsplötur og mjúkt plast. Fæst 35 mm og 65 mm breitt, með StarLock festingu.
NORSE E-Cut Precision er fjölsagarblaðið fyrir þá sem vilja bæði hraða og nákvæmni. Blaðið er með tvöföldum japönskum tönnum sem rífa sig hratt í gegnum efnið og skilja eftir hreina, beina brún, hvort sem sagað er í við, gifsplötur eða mjúkt plast. Blöðin eru framleidd í Þýskalandi.
Blaðið fæst í tveimur breiddum. 35 mm blaðið (nr. 126) er mjótt og mittisgrannt og hentar vel í stingskurð og þröng rými, til dæmis úrtök fyrir dósir og lagnir. 65 mm blaðið (nr. 230) er extra breitt og gefur langa, beina skurði á miklum hraða, til dæmis þegar stytta þarf hurðarkarma, gólflista eða þiljur.