Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SATA-ST96313SC
Stillanlegur 1/2″ átaksmælir, 68–340 Nm, með ±3% nákvæmni og skrallhaus með hraðlosun.
Stillanlegur átaksmælir með 1/2" drifi fyrir nákvæma herslu á felgubolta, strokklok, undirvagn og aðra bolta þar sem rétt átak skiptir máli. Mælirinn smellur þegar stilltu átaki er náð, svo þú herðir hvorki of lítið né of mikið.
Skrallhausinn er með hraðlosun og hægt að snúa honum í báðar áttir. Átakið er stillt með því að draga lásinn á handfanginu niður og snúa, og hnúðað álhandfangið gefur gott grip sem rennur ekki til.