Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SKU-0073
Veldu gerð til að bæta í körfu
Djúprásarkúlulegur í 6200 röð eru algengasta gerðin af kúlulegum og eins konar staðall í vélbúnaði. Þær hafa gott jafnvægi milli stærðar og burðargetu og passa í flestar almennar notkunir.
Legurnar þola bæði geislaálag og nokkurt ásálag í báðar áttir og ganga vel á miklum hraða. Þær eru notaðar í rafmótorum, dælum, gírkössum, hjólum, landbúnaðartækjum, bílum og iðnaðarvélum.
SKF er einn stærsti og þekktasti legaframleiðandi heims og legurnar eru þekktar fyrir gæði, nákvæmni og langa endingu.
Ertu ekki viss um hvaða legu þú þarft? Legunúmerið er yfirleitt prentað á hlið legunnar.
Legunúmerið segir til um stærðina. Síðustu tveir tölustafirnir gefa innanmálið: 00 = 10 mm, 01 = 12 mm, 02 = 15 mm, 03 = 17 mm, og frá 04 og upp er talan margfölduð með 5 (t.d. 6205 = 25 mm). Önnur talan segir til um röðina: 0 = 6000 röð (létt), 2 = 6200 röð (miðlungs), 3 = 6300 röð (þung).