Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SKU-0075
Veldu gerð til að bæta í körfu
Litlar djúprásarkúlulegur fyrir smærri vélbúnað og tæki. Þær eru léttar og nettar og ganga vel á miklum snúningshraða.
Smálegur eru notaðar í rafmagnsverkfærum, litlum rafmótorum, viftum, hjólabrettum, hlaupahjólum, módelum og ýmsum heimilistækjum. Til dæmis er 608 legan sú sem finnst í flestum hjólabrettum og hlaupahjólum.
SKF er einn stærsti og þekktasti legaframleiðandi heims og legurnar eru þekktar fyrir gæði, nákvæmni og langa endingu.
Ertu ekki viss um hvaða legu þú þarft? Legunúmerið er yfirleitt prentað á hlið legunnar.
Í smálegum segir síðasti tölustafurinn til um innanmálið í millimetrum, t.d. 608 = 8 mm og 626 = 6 mm. Miðtalan segir til um röðina: 0 = létt (t.d. 607, 608) og 2 = miðlungs (t.d. 626, 627, 629). Því er 627 sterkari og með stærra utanmál en 607, þótt innanmálið sé það sama.