
Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SKU-0163
Veldu grunnur og stærð til að bæta í körfu
Mött akrýl útimálning á steypu og múr. Andar, er veðurþolin og hentar íslenskum aðstæðum.
Skjöldur er mött, vatnsþynnanleg akrýlmálning frá Slippfélaginu, ætluð á steinsteypu og múrhúð utanhúss, bæði við nýmálun og endurmálun.
Hún hefur mjög gott alkalí-, vatns- og veðrunarþol og hentar íslenskum aðstæðum vel. Filman er sveigjanleg sem minnkar hættu á sprungum, og málningin andar þannig að raki kemst út úr veggnum. Yfirborðið hreinsar sig vel og safnar síður óhreinindum.


