Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: 428001020
Permabond 792 er léttfljótandi lím til iðnaðarnota fyrir margs konar efni og yfirborð.
Límir afar hratt og og hentar t.d. vel á tré, málma, keramik, plast og gúmmí.
Sýanakrýllím eru einþátta og fjölliðast mjög hratt ef þrýst saman í þunnt lag milli flata.
Rakinn sem er til staðar kemur hörðnuninni af stað. Sterk líming fæst á svipstundu hjá miklum fjölda efna.
Límið hentar því afar vel til nota á hraðgengan vélbúnað.
Umbúðir: 20ml.
Permabond 792 þolir hitun (150°C) í skamman tíma, sé álag á límfleti hóflegt, og kælingu allt niður í -55°C.
Notið ekki í snertingu við gufu, öfluga oxara og skautuð leysiefni.
Þolir þvott með leysiefnum.
Geymsluhitastig: 2° til 7°C.
Notkunarleiðbeiningar:
1) Límfletir skulu vera fituhreinsaðir og þurrir. Notið t.d. ísóprópanól eða aseton við hreinsun. Málma með oxíðhúð(ál, kopar) er gott að slípa lauslega.
2) Berið lítið magn límsins á annan flötinn (1 dropi nægir).
3) Þrýstið flötum saman hratt og í rétta stöðu.
4) Beitið hæfilegum þrýstingi þ.a. límið myndi þunna filmu.
5) Látið óhreyft þar til límið hefur harðnað, yfirleitt að fáum sekúndum liðnum.
6) Umframmagn má hreinsa með leysiefni.
7) Límda hluti má handleika eftir 5 sek.
8) Límið nær fullum styrk á sólarhring.
9) Notið Permabond Activator á gleypt yfirborð. Þegar pólýprópýlen, teflon eða sílikon er límt, ætti að grunna með Permabond Polyolefin Primer.