Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: KE TV-EC
Nettur 2000 W hitablásari fyrir skrifstofuna, vinnuherbergið eða önnur lítil rými. Tvær hitastillingar, vifta án hita, frostvörn og veltivörn.
Þessi netti hitablásari er hugsaður sem aukahiti þar sem vantar smá yl, á skrifstofunni, í vinnuherberginu, sumarbústaðnum eða í öðrum litlum rýmum upp að 20 m². Hann er léttur og með handfangi, svo það er auðvelt að færa hann þangað sem þörfin er.
Veldu 1000 W eða 2000 W eftir þörf, eða notaðu viftuna án hita á heitum dögum. Stillanlegur hitastillir heldur jöfnum hita, og með frostvarnarstillingu má láta hann halda rými frostfríu. Veltivörn slekkur á blásaranum ef hann veltur og yfirhitavörn kemur í veg fyrir ofhitnun.