Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: TO YT99693
Öflugur 3 kW hitablásari frá YATO með málmhúsi og þremur stillingum. Tengist í venjulega 230 V innstungu og hentar í bílskúrinn, verkstæðið eða geymsluna.
Hitablásararnir frá YATO eru sterkbyggðir og með málmhúsi sem þolir að vera notað þar sem unnið er, í bílskúrnum, á verkstæðinu, í geymslu eða á byggingarstað. Þeir blása miklu lofti og ná upp hita á stuttum tíma, og hitastillir heldur jöfnum hita þegar rýmið er orðið heitt.
Blásarinn hefur þrjár stillingar: viftu án hita, hálft afl og fullt afl. Á sumrin má því líka nota hann sem viftu. Tvöföld yfirhitavörn og gaumljós auka öryggið.