
Karfan er tóm
Bættu vörum í körfuna til að halda áfram
SKU: SKU-0148
Veldu afl til að bæta í körfu
Sterkbyggður hitablásari frá YATO með málmhúsi og þremur stillingum. Fæst 3 kW fyrir venjulega 230 V innstungu og 5 kW fyrir 400 V þriggja fasa tengingu. Hentar í bílskúrinn, verkstæðið, geymsluna og á byggingarstað.
Hitablásararnir frá YATO eru sterkbyggðir og með málmhúsi sem þolir að vera notað þar sem unnið er, í bílskúrnum, á verkstæðinu, í geymslu eða á byggingarstað. Þeir blása miklu lofti og ná upp hita á stuttum tíma, og hitastillir heldur jöfnum hita þegar rýmið er orðið heitt.
Blásarinn hefur þrjár stillingar: viftu án hita, hálft afl og fullt afl. Á sumrin má því líka nota hann sem viftu. Tvöföld yfirhitavörn og gaumljós auka öryggið. Veldu 3 kW fyrir rými allt að 30 m² með venjulegri 230 V innstungu, eða 5 kW fyrir stærri rými allt að 48 m² þar sem 400 V þriggja fasa tenging er til staðar.

